Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
PBS

 

PBS á Suðurborg

 

Við í leikskólanum Suðurborg höfum ákveðið að vinna eftir svokölluðu PBS kerfi. PBS er ,,Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun”. Þetta er jákvætt agakerfi sem fellst í því að kenna, viðhalda og styrkja æskilega hegðun. Allur leikskólinn vinnur eftir kerfinu og þar af leiðandi samræmum við reglur í leikskólanum með einföldum og áhrifaríkum aðferðum. Leikskólinn hefur valið sér þrjú einkunnarorð sem unnið er útfrá samkvæmt PBS kerfinu. Einkunnarorðin eru ábyrgð, umhyggja og öryggi. Kerfið hentar öllum nemendum leikskólans þar sem áhersla er lögð á jákvæða athygli og hrós. Lögð er áhersla á að rétt hegðun sé kennd og hún æfð þannig að nemendur viti til hvers er ætlast af þeim. Reglur eru settar fram á myndrænan hátt á þeim svæðum sem þær ná til. Þegar nemandi sýnir rétta og viðeigandi hegðun fær hann styrkingu með hrósi og fingramerkjum. Nái nemandi ekki að tileinka sér viðeigandi hegðun fer í gang svokallað inngrip þar sem nemandinn er leiddur áfram og honum hjálpað  skref fyrir skref uns hann hefur náð að tileinka sér viðeigandi færni. Lögð er áhersla á að börnunum sé kennt að þekkja eigin tilfinningar og annarra þannig að þau verði hæfari í mannlegum samskiptum. Nái nemendur einhverra hluta vegna ekki að tileinka sér kerfið sem skyldi býður það uppá einstaklingsmiðuð úrræði fyrir viðkomandi nemenda. Ákveðið ferli fer þá í gang sem er sérsniðið að þörfum hvers og eins með fyrirbyggjandi aðgerðir að leiðarljósi og kennslu á nýrri færni. 

 

Markmiðin með PBS eru:

-          Að skapa betra og jákvæðara vinnuumhverfi.

-          Að auka félagsfærni.

-          Að draga úr óæskilegri hegðun.

-          Að skila hæfari einstaklingum út í grunnskólana.

 

 

Mat á árangri:

Í upphafi gerðum við matslista og mátum starfið okkar eins og það var í upphafi verkefnisins. Þar á eftir var gerð áætlun um hvað betur mætti fara. Við metum svo árangurinn reglulega yfir tímabilið á PBS fundunum okkar auk þess sem við gerum sama matslistann aftur og metum framfarir og gerum úrbætur þær sem þörf er á.

 

 

Teymisstjórar eru Hulda I. Magnúsdóttir og Candace Alison Loque.

 



PBS 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

 

PBS verkefni

Í janúar 2010 byrjum við á því að innleiða hluta 2 í PBS verkefninu okkar. Við munum að sjálfsögðu líka halda áfram að vinna með hluta 1 eins og undanfarna mánuði. Í hluta 2 munum við vinna með tilfinningafærni, vinafærni, reiðistjórnun og lausnamiðaða leikni. Í janúar byrjum við á tilfinningunum, við kennum börnunum að gera sér grein fyrir eigin tilfinningum og annarra og að tjá tilfinningar. Við tökum fyrir 6 tilfinningar þ.e. glaður, leiður, reiður, hræddur, hissa og áhyggjufullur. Í febrúar byrjum við á vinafærninni og í mars byrjum við svo að kenna reiðistjórnun og lausnamiðaða leikni. Samhliða hverri innleiðingu verðum við alltaf að vinna með það sem áður er búið að innleiða. Markmið okkar er að skapa jákvæða hegðun  og færni í mannlegum samskiptum.

 
Kennsluáætlun fyrir öll almenn svæði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Nota inniröddina

Hafa hendur og fætur hjá sér

 
Kennsluáætlun fyrir leiksvæði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Fara vel með dótið taka/saman

 
Kennsluáætlun við matarborð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Fá allt á diskinn

Hjálpa sér sjálfur

Snúa að borðinu/snúa fram

 
Kennsluáætlun á salerni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Leyfa öðrum að hafa næði

Þvo hendur

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 3

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Suðurborg | Suðurhólar 19 | 111 Reykjavík | s: 557 3023 | Póstur | Viðburðir | Fréttir