|
|
Nú eru hefðbundnu bangsarnir okkar komnir í frí og í staðinn eru komnir vinir okkar úr Comeniusarverkefninu.
Börnin fara heim með töskuna á mánudegi og koma aftur með hana á miðvikudegi.
Taskan fer svo heim með öðru barni á miðvikudegi sem skilar á föstudegi.
Í töskunni er: Bangsi, kynningarhefti um Comenius og bók til að skrifa ferðasögu.
Nauðsynlegt er að allt fylgi töskunni þegar börnin skila henni.
Vonandi getið þið fræðst um samstarfslöndin í Comenius og átt góða tíma með mjúku gæludýrunum okkar.
Frábært væri ef þið getið skrifað sögu og jafnvel skreytt eða sett myndir með.
Með von um gott samstarf.
Jóna verkefnisstjóri
|
|
|
Heimsókn til vinaleikskólans á Spáni |
|
|
|
|
Ferðalagið til Spánar gekk mjög vel og var ferðin mjög lærdómsrík og skemmtileg. Vinaleikskólarnir eru í fjallahéruðum Madrid og eru í litlum bæjum þar sem mikil samkennd er meðal íbúa. Á leikskólunum eru börn á aldrinum 3 mánaða til 3 ára en þá byrja þau í grunnskóla. Leikskólinn er mjög skemmtilegur. Mikið er af fallegum veggmyndum (eftir starfsfólk) og það er eins og maður sé að labba inn í ævintýri.
Leikskólinn er ólíkur því sem við þekkjum á Suðurborg en þar búa fæst börnin listaverkin sjálf heldur starfsmenn sjálfir. Margir starfsmenn eyða mörgum tíma í dag að undirbúa fyrir aðra starfsmenn. Starfsmenn borða aldrei með börnunum heldur borða þeir á kaffistofu, það fannst okkur mér sérstakt enda borðum við alltaf með börnunum á Suðurborg.
Það var einstaklega vel tekið á móti okkur og það var gaman að fá að sjá hvernig Spánverjar vinna og hvernig þau upplifa Ísland.
Bestu kveðjur
Jóna, Hulda og Regína
|
|
Hefðir og ævintýri ferðast um Evrópu |
|
|
|
|
Comeniusarverkefnið er samstarfsverkefni 5 leikskóla í 4 löndum, Ísland (Suðurborg), Spánn (2 leikskólar), Noregi og Portúgal. Verkefnið stendur í 2 ár og heitir Traditions and tales traveling for Europe eða Hefðir og ævintýri ferðast um Evrópu.
Verkefnið er mjög skemmtilegt og hafa börnin haft gaman af. En við höfum verið að vinna með ævintýri Spánar. Starfsmenn Suðurborgar hafa nú þegar skoðað leikskólann í Portúgal. Núna 6. nóvember fara Jóna, Regína og Hulda að skoða leikskólana 2 í Madrid. Við setjum inn ferðasöguna seinna. |
|
|
|
|
|
|