|
Kaffidagur fyrir foreldra |
|
|
|
|
Kaffidagur fyrir foreldra föstudaginn 5. febrúar
Föstudaginn 5. febrúar verður kaffidagur á leikskólanum fyrir foreldra. Foreldrum er boðið að koma í morgunkaffi á deild barnsins síns milli kl. 8:15 og 9:15. Boðið verður uppá kaffi og te. Ætlunin er svo að hafa þetta fyrirkomulag einu sinni í mánuði fram á vor. Markmiðið með þessum kaffidögum er að efla samstarfið milli heimlis og skóla. Foreldrum gefst kostur á að kynnast deildinni betur, starfsfólkinu, börnunum og öðrum foreldrum. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og staldra við stutta stund. 
|