Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Spurt og svarað
Afmælisboð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Leikskólinn hefur sett þá reglu að þegar boðið er til veislu með boðskortum sem sett eru í hólf skulu eftirfarandi reglur gilda:

a. Það er gert með vitund starfsfólks á deild

b. Öllum árganginum er boðið eða

c. Öllum stelpunum er boðið eða

d. Öllum strákunum er boðið eða

e. Öllum á deildinni er boðið.

Þetta kemur í veg fyrir mismunun og að börn upplifi höfnun. Ef foreldrar vilja einungis bjóða útvöldum í afmæli eru þeir beðnir um að gera það símleiðis til viðkomandi foreldra.

 
Leikskólataskan Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Nauðsynlegt er að hafa aukaföt með barninu og þannig fatnað að þau geti verið úti hvernig sem viðrar. Föt barnanna sem og skór þurfa að vera vel merkt. Vinsamlegast verið ekki með of mikið af skóm eða fatnaði sem börnin mega ekki nota í leikskólanum.

Leikskólinn hefur nú tekið upp svokallað ,,kassafyrirkomulag" en í hverjum fataklefa er plastkassi merktur með nafni barnsins. Í honum á að geyma þau aukaföt sem nauðsynlegt er að barnið hafi með í leikskólanum. Ekki er þörf á því að tæma þennan kassa um helgar en foreldrar verða að fara í gegnum kassana reglulega og fylla á það sem vantar. Á hverjum kassa er listi yfir það sem á að vera í honum. 

Útifötin sem barnið er með í leikskólanum skal koma með í leikskólann á mánudegi og tæma skal hólfin á föstudegi. A.t.h. ekki er ætlast til að barnið sé með töskur í hólfunum þar sem þær taka of mikið pláss. Það þarf einnig að tæma snagana fyrir pollafötin og stígvélahillurnar á föstudegi. 


pdf leikskólataskan
 

 
Veikindi barna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Vinsamlegast tilkynnið ef barnið er veikt eða fjarverandi. Eftir veikindi er æskilegt að börn dvelji heima 1-2 sólahringa hitalaus. Veik börn eiga ekki að dvelja í leikskóla. Börnin geta verið inni 1-2 daga eftir veikindi. Ekki er æskilegt að börn séu inni í útveru til að fyrirbyggja veikindi nema í undantekningatilfellum. Ef barn er fjarverandi vegna veikinda í 4 vikur samfellt eða meira er heimilt að gefa eftir helming dvalargjalds gegn læknisvottorði.

 
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Þegar börn eiga afmæli þá fá þau að vera í aðalhlutverki þann dag. Þau fá að vera ,,þjónar" þ.e. leggja á borð og bjóða til borðs. Barnið fær afmæliskórónu og skikkju til að hafa þennan dag. Afmæliskakan hefur verið tekin út hjá okkur til minnka sætindin í leikskólanum. Þess í stað erum við með kökudag einu sinni í mánuði en þá fá öll börnin heimabakaða köku í síðdegishressingunni.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 3

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Suðurborg | Suðurhólar 19 | 111 Reykjavík | s: 557 3023 | Póstur | Viðburðir | Fréttir