Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Lokað vegna skipulagsdags starfsmanna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 30 október 2009 13:38

Leikskólinn verður

lokaður 20. nóv. til kl. 12:30

v/ skipulagsdags

 

***

 

The kindergarten will be closed

the 20th of November until 12:30

because of preperation day

 

***

 

Przedszkole bedzie zamkniete

20.11. do gools.12:30

tego dnia pracownicy beda na kursie zwiazanym z organizacja prowadzenia

przedszkola zima

 

 

 
Lokað vegna námskeiðsdags starfsmanna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 01 október 2009 13:50

Kæru foreldra/forráðamenn 

 

Lokað verður vegna námskeiðsdags starfsmanna miðvikudaginn 21. október

 

 

To the parents and guardians

 

It will be closed on Wednesday the 21st of October because we will use this day to organize and have a course.

 

 
Aðalfundur foreldrafélags Suðurborgar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 24 september 2009 11:32

Minnum á aðalfund foreldrafélagsins sem verður mánudaginn 28. September kl. 20.00.

 

Dagskrá fundar er:

 

1.      Skýrsla stjórnar

2.     Reikningar lagðir fram

3.     Lagabreytingar

4.     Kosning stjórnar

5.     Önnur mál

 

Að loknum fundi kemur Guðrún Ebba Ólafsdóttir frá Blátt áfram og talar um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi.

 

                                                                                           Stjórn foreldrafélags Suðurborgar

 

 
Fréttabréf haust 2009 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 15 september 2009 13:35

Fréttabréf haust 2009

·         Nú þegar nýtt vetrarstarf fer af stað viljum við bjóða ný börn og foreldra þeirra velkomin í leikskólann og vonum að öllum eigi eftir að líða vel hjá okkur.

Allt starf mun fara af stað um miðjan september og verður þema vetrarins ,,Leikur og vinátta“.

 

·         Smiðjan verður á sínu stað en þar tekur Regína á móti börnunum í hópum með tónlist og hreyfingu. Á meðan einn hópur er í tónlist og hreyfingu í sal eru hin börnin í myndlist inni á deildum. Hver deild á einn dag í smiðju og skiptingin eins og hér segir:

 

Brekkukot......................................Mánudögum

Lækjarkot.......................................Þriðjudögum

Krílakot/Dvergakot........................Miðvikudögum

Álfakot/Huldukot..........................Fimmtudögum

Hólakot..........................................Föstudögum

 

 

·         Ýmsar breytingar hafa verið í starfsmannahópnum en þrír starfsmenn fóru í fæðingarorlof í júlí og ágúst. Það voru þær Kolbrún á Hólakoti, Rósa á Huldukoti og Kolbrún(Kolla) deildarstjóri á Álfakoti og koma þær aftur að ári liðnu.

Ella sem áður var deildarstjóri á Huldukoti hefur fært sig um set og er nú deildarstjóri                     á Álfakoti. Í hennar stað kemur Gyða Rós en hún er leikskólakennari og er að koma aftur til okkar eftir 2 ára hlé. Við bjóðum hana velkomna til starfa.

Arndís Eva sem áður var á Lækjarkoti hefur nú fært sig á Hólakot. Vlora sem áður var á Huldukoti hefur fært sig á Krílakot og Bára sem áður var í afleysingum starfar núna á Huldukoti.

 

 

·         Breytingar hafa einnig orðið á afmælisveislum barnanna en í stað þess að bjóða upp á köku í hverju afmæli fyrir sig ætlum við að bjóða upp á afmælisköku einu sinni í mánuði. Öll börn á deildinni sem eiga afmæli í viðkomandi mánuði taka þátt í að bjóða hinum börnunum í kökuveislu.

Þann dag sem börnin eiga afmæli munu þau samt eftir sem áður vera í aðalhlutverki og fá þau skreytta kórónu og skikkju.

 

·         Sú breyting hefur orðið á að nú þurfa foreldrar barna með bleiur að koma með svampa eða blautþurrkur með bleiupakkanum á viðkomandi deild.

 

 

 

·         Námskeiðsdagur starfsmanna verður þann 21. október en þá verður leikskólinn lokaður. Þennan dag mun starfsfólk að fá námskeið um slys á börnum, hvernig á að bregðast við og hvernig hægt er að koma í veg fyrir þau. Herdís Stargard mun sjá um námskeiðið.

 

·         Frá og með 1. október verður leikskólanum lokað kl. 17.00 á daginn.

 

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 15

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Leikskólinn Suðurborg | Suðurhólar 19 | 111 Reykjavík | s: 557 3023 | Póstur | Viðburðir | Fréttir